The future belonges to those who believe in the beauty of their dreams
31.05.2009 00:49:33 / katrin

"Vonin er draumur vakandi manns" Aristóteles

Jæja Berglind mín, þá færðu loksins smá blogg, veit nú ekki hvað það verður langt þar sem lítið hefur gerst síðan ég yfirgaf norðurlandið.

Ég var s.s. fyrir norðan frá 30.apríl til 26.maí, yndislegur tími, við byrjuðum á að halda upp á 90 ára afmælið henna ömmu á Dalbæ, það tókst æðislega vel og allir ánægðir með daginn.
síðan tók sauðburðurinn við og ég, Berglind, Íris og Hákon vorum nánast öllum stundum í fjárhúsinu sem var bara fínt, fullt af sætum lömbum....
Ég kíkti líka nokkrum sinnum til Möggu og var sófadýr hjá henni en það var nú voða fáar nætur. Síðan var elsku besta mamma mín 50 ára og við héldum að sjálfsögðu upp á það:d enda er hún nú besta mamma í heimi:haha:

Síðan var komið að kveðjustund og hún var sko ERFIÐ:cry: finnst svo erfitt að fara frá öllum og það var ennþá erfiðara þegar ég var komin heim og var EIN í hinum stóra heimi... eða mér fannst það.

Síðan ég kom suður hefur vinnan tekið við, fór reyndar út að borða með Dísu sem var yndislegt, langt síðan við höfum brasað eitthvað saman:d og í kvöld bauð Sússa mér í mat og ég sat og saumaði og horfði á sjónvarpið með henni, mjög notalegt kvöld, mér áskotnuðust líka fullt af staupum svo nú á ég nokkuð myndalegt staupglasasafn, bara spurning hvar ég á að koma þeim fyrir.... en það er bara seinni tíma vandamál...;)

En framundan er síðan bara vinna, og taka á móti pabba á miðvikudaginn þar sem hann er að koma í seinni aðgerðina en venju samkvæmt stoppar hann ekkert allt of lengi því hann fer aftur daginn eftir eða sama dag og hann er búinn í aðgerðinni en það verður samt gaman að sjá hann.

Síðan stefni ég á að koma norður í útskriftina henna Möggu en það verður bara gaman:d verst að bíladagarnir eru ekki um sömu helgi, það hefði verið enn betra;)

En þá er brunnur visku minnar þurrausinn svo ég kveð í bili, kæru lesendur

Knús og kossar úr borg óttans


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.03.2009 22:48:12 / katrin

Engar fréttir eru góðar fréttir

Það eru orð að sönnu, enda engar risastórar fréttir í gangi þessa dagana. Skellti mér norður 4-10 mars og var í afmæli hjá litlu músinni sem varð þriggja ára. bara yndislegt að komast norður, hafði ekki komið norður í 2 mánuði sem mörgum finnst kannski ekki mikið en fyrir mig var það MJÖG langur tími. Fékk æðislega marga Írisarknúsa auk þess sem litla músin gerði það svo erfitt að fara aftur suður. Við (ég og Íris) vorum inni í eldhúsi þegar hún spyr hvort ég sé mamma hennar en ég segi að ég sé bara besta frænka hennar og bæti við, er það ekki ??? og ég fæ til baka " besta frænka í heimi" ef ég var ekki búin að bráðna áður en þetta kom þá gerðist það pottþétt á þessum tímapunkti:haha: oh hvað hún er yndisleg þessi litla mús :haha: nú þarf ég bara að kenna Hákoni að knúsa svona :haha: sjáum hvernig það gengur;)

Eftir að ég fór suður aftur hef ég lítið gert annað en vinna, vinna og vinna aðeins meira. Ég og Sússar skelltum okkur að vísu í leikhús á Fló á skinni og það var sko meira en gaman. Jú og síðan má nú ekki gleyma því að ég Berglind og Solla erum búnar að panta okkur far til Noregs að hitta hana Beggu okkar, það verður æðislega gaman, hlökkum mikið til:haha:

Síðan er ég að flytja aftur á Leifsgötuna á morgun þar sem tökum á mömmu Gógó er nú lokið, það verður nú gott að sofa í rúminu sínu aftur;)

En framundan er endalaus vinna til að vinna af sé vaktirnar sem ég átti að vera að vinna á meðan ég verð í Noregi og líka vinna af mér 2 vikur í maí svo maður komist nú heim í sauðburð og hitta liðið aðeins:haha:

Gleymdi næstum því að segja frá því að ég fór og hitti Bliku í dag sem er hvolpur sem Birta og Bylgja eru að fá, hún er 4 vikan og bara sæt, tók svo margar myndir af henni til að senda norður að ég er hrædd um að hafa gert hana blinda, en hún er bara sæt, passar í lófana á manni hún er svo lítil, var að hugsa um að stinga henni undir úlpuna og HLAUPA en ákvað að sleppa því í þetta sinn.... hver veit, kannski næst þegar ég fer og mynda hana 1.apríl;)

En nú er ég búin að vera æðislega dugleg að blogga og vona að þið lesendur góðir verðið líka æðislega duglegir að kommenta..... 30 flettingar á síðunni í dag og ekkert komment:evil:

Knús og kossar úr borg óttans:d

» 9 hafa sagt sína skoðun

26.02.2009 00:40:46 / katrin

Mér skilst að ég skuldi færslu.....

Það er víst löngu orðið tímabært að skella inn nokkrum línum hérna, skilst að ég hafi lofað  því fyrir lifandi löngu.... man bara ekkert eftir því:lol:
Það er svo sem ekki margt að frétta héðan frekar en venjulega, er bara alltaf að vinna, vinna og vinna aðeins meira.

Reyndar kom Magga í heimsókn til mín 12.febrúar og stoppaði fram á sunnudag, það var æðislega gaman:haha: Það var sko margt brallað þá helgi.
Ég meira að segja keypti mér sófa sem er hægt að sitja í lengur en 5 mínútur í einu:haha: við sáum það fyrsta kvöldið að við þyrftum að versla betri sófa ef við ætluðum að lifa helgina af, svo að sjálfsögðu verslaði ég þennan fína sófa í RL magasín, dýrari mublu en ég hafði ætlað en hann er svo þægilegur að ég fyrirgef alveg verðið.
En þar sem við Margrét vorum að versla saman hlaut eitthvað að koma uppá... þetta byrjaði þannig að ég þurfti að ákveða hvoru megin tungan á sófanum ætti að vera og eftir langa umhugsun þá ákvað ég að hafa hana hægra megin þegar maður sæti í sófanum og strákurinn samþykkti það en spurði mig til öryggis þrisvar sinnum hvoru megin tungan ætti að vera, síðan var gripurinn borgaður og sagt að hann kæmi milli 18 og 22 sama kvöld, við vorum bara ánægðar með þetta og héldum áfram búðarröltinu. Síðan hringin síminn hvorki meira né minna 20 mínútur í sex og sófinn var kominn:haha:, ég hljóp út og hélt á tungunni inn með bílstjóranum en nema hvað, helv.... stóð fast í dyrunum :^)og það var sama á hvaða kant við lyftum og ýttum og nánast spörkuðum, helv.... ætlaði ekki inn í íbúðina, þegar þarna var komið vorum við búin að reyna að koma gerpinu inn í 30 mín og bílstjórinn sagðist þurfa að fara þannig að hinn helmingurinn var borinn inn og við Magga stóðum uppi með sófann pikkfastan í dyrunum og næsta var að skrúfa fæturna af helv... til að koma honum inn, en það var nú aldeilis ekki nóg heldur þurftum við líka að taka fatahengið niður.....

Þegar þarna var komið var ég ekki eins glöð með nýja sófann og fyrr um daginn... :evil:en fyrir rest náðum við tungunni inn og þyngri helmingurinn af sófanum fylgdi fast á eftir, við vorum náttúrulega svo ánægðar að ná báðum hlutunum inn að við rífum utan af sófanum og setjum hann saman.....en hvur andsk..... að sjálfsögðu var tungan vitlausu megin:evil:, við vorum orðnar svo þreyttar og pirraðar að við ákváðum að sitja á helv... og skila honum daginn eftir :^)eða allavega fá afslátt. Og þetta var sko notalegt kvöld á sófanum.....;)

Daginn eftir fórum við síðan í RL magasín og þegar greyið strákurinn sá okkur kom þvílíkur skelfingarsvipur á hann og greyið spyr hvort ég hafi ekki fengið sófann... ég segist að sjálfsögðu hafa fengið sófann en tungan væri vitlausu megin..... við sættumst síðan á 15% afslátt og allir voru sáttir.
Ljóta sófanum skilaði ég síðan aftur í Góða hirðinn og gæti ég ekki verið glaðari með þessi skipti.

Annars vorum við að mestu rólegar þessa helgi, vorum alger sófadýr enda svo góður sófi í boði:haha:

Það var síðan ansi tómlegt þegar Magga fór, enda alltaf gaman að fá góða í heimsókn....

Síðan skrapp ég upp í Borgarfjörð síðasta föstudag og hitti Elvu frænku og co og það var einstaklega ánægjulegt eins og venjulega:)

Kellan skellti sér síðan í bíó í gærkveldi á Slumdog millionaire, sem var allt öðruvísi en ég hélt en mjög góð og ég mæli með henni við þá sem hafa áhuga á að sjá vel leikna mynd

Ég mætti síðan snemma í vinnuna í dag og ætla á auka næturvakt á föstudaginn og síðan er ekkert planað nema vinnan og síðan það sem ég hlakka endalaust til og það er að fara norður og knúsa alla, hlakka mikið mikið til.

En nú kæra besta systir hef ég staðið við minn hluta samningsins og vona að þú fyrirgefir seinaganginn fyrst ég hafði þetta svona langa færslu:haha:

Knús og kossar úr borg óttans


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2009 18:58:41 / katrin

Flutt....

Já nú er kellan flutt í nýju fínu íbúðina.... flutti 30.jan og líkar bara vel. Allt er að verða komið, er meira að segja komin með skjá einn sem er mikill munur, var í einhverja 10 daga án skjásins og það var sko ekki ljúft líf.
Ljóti sófinn sem ég keypti mér er síðan þegar reynir á ekkert þægilegur, ekki til lengri setu allavega :lol: en ég stefni á að kaupa einhvern betri fljótlega
Er á leið á næturvakt í nótt og síðan ætlar Magga að koma í heimsókn á morgun og vera ALLA helgina:haha: get ekki beðið:haha:

Síðan er stefnan sett norður fljótlega eftir mánaðamótin til að halda upp á afmæli prinsessunnar því guðmóðirin verður nú að vera á svæðinu (spurning hvort það er meira fyrir hana en mig en það er annað mál). Er farin að sakna allra ofsalega mikið. Það er s.s. ekkert nýskeð því það var erfitt að fara frá norðurlandinu, mun erfiðara en áður:cry: en það þýðir ekkert að væla yfir því heldur vona bara að ástandið í þjóðfélaginu fari að batna svo maður geti farið aftur norður einhverntíman og þá verður nú kátt í höllinni:d

Annars er ekkert mikið meira að frétta,endalausar kvikmyndatökur á hæðinni fyrir ofan og í byrjun mars þurfa þau aðgang að íbúðinni minni í tökurnar, spennó spennó:d hver veit nema maður verði like in the movie ;)

Knús og kossar úr borg óttans

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.01.2009 19:03:24 / katrin

Nú erum við að tala saman

Það hefur nú aldeilis dregið til tíðinda síðan síðast :d Ég er búin að leigja mér íbúð mjög stutt frá vinnunni og hlakka verulega til að fara að búa, eiga mitt eigið hreiður:haha:
Ég er búin að fá sent fullt af dóti að norðan (takk pabbi) og nú vantar bara eldavélina í íbúðina og þá get ég flutt inn. Er búin að vera að fara með dót hægt og rólega í íbúðina og keypti mér meðal annars ógeðslega ljótan sófa í góða hirðinum á 6000kr en það er þægilegt að sitja í honum þannig að ég kaupi bara teppi eða eitthvað til að breiða yfir hann8)

Annars er ég bara búin að vera að vinna eins og venjulega, er komin í helgarfrí og ætla að fara á BTLS (basic trauma life support) námskeið á mánudag og þriðjudag þar sem við erum að fara að sameinast slysadeildinni, held þetta verði ótrúlega skemmtilegt námskeið, erum að fara að læra að spenna fólk á bretti, setja á það kraga, klippa það út úr bílum og annað skemmtileg, þetta verður magnað;)

Síðan ætlar Magga að koma og taka placið út um miðjan febrúar, það verður bara gaman, hlakka mikið til:haha:

Annars er ekkert meira að frétta svo ég kveð í bili og vona að karlpeningur landsins eigi góðan bóndadag og þið öll eigið góða helgi
Knús og kossar úr borg óttans

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 17:34:32 / katrin

Laaaaaangt síðan síðast

Já það eru orðnir nokkrir dagar síðan ég tjáði mig hérna síðast, kannski kominn tími til að henda inn nokkrum línum í tilefni þess að ég er flutt aftur í borg óttans

Ég s.s. ákvað að flytja aftur suður því ég var ekki að fá þá vinnu sem ég vildi fyrir norðan en hef frábæra vinnu hérna íborg óttans á bráðamóttökunni við Hringbraut. Yndislegt að  vera aftur í yndislegu vinnunni sinni.

En eins og venjulega er ekkert mikið að frétta annað en ég er bara alltaf að vinna, en það er líka fínt, mér leiðist allavega ekki á meðan:d

Komandi helgi ætla ég að verja með mömmu og Birtu og Bylgju, þær eru að koma í borg óttans og það verður gaman að brasa með þeim, hlakka mikið til:haha:

Þar sem ég hef ekki frá mörgu að segja þessa stundina verður þessi færsla ekki lengri en hver veit nema ég fari að verða duglegri við að henda inn nokkrum línum, þ.e. ef einhver er að kíkja inn á síðuna ennþá;)

Þar til næst, knús og kossar til ykkar allra lesendur góðir

» 8 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 19:04:32 / katrin

Laaaaangt blogg

 

Kominn tími á blogg enda frá mörgu að segja í þetta sinn, aldrei þessu vant...

 

Magga vinkona kom í heimsókn til mín 2.apríl og náði ég í hana á flugvöllinn og skemmtihelgin hófst (var reyndar 5 daga en það er annað mál)... ég var s.s. búin að vinna 24 vaktir í röð áður en að skemmtihelginni kom.

 

Markmið helgarinnar var að fara í engar búðir en samt einhvernvegin enduðum við á að fara í Elko, IKEA, Tölvulistann, Intersport, Max raftæki og Bónus, aha þetta tekst aldrei hjá okkur að fara ekki í búðir en það er yfirleitt langur listi sem er komið með að norðan en ég átti nú samt minn skammt af búðum í þessari ferð.

 

Á fimmtudaginn ákváðum við að gera eitthvað skemmtilegt og ákváðum að skella okkur í keilu, eitthvað sem við höfum ekki gert frá því við vorum unglingar (yngri unglingar). Við vorum ekki alveg sammála um hvora lyftuna ætti að taka niður svo við skiptum liði og ég fór í stóru lyftuna en Magga í litlu lyftuna. Um leið og lyfturnar kæmu hæfist keppnin og sú sem kæmi fyrst niður ynni. Að sjálfsögðu komu lyfturnar á sama tíma og keppnin hófst, ég var komin á undan niður og doka eftir að Magga birtist, ekkert gerist og engin Magga birtist, eftir 2-3mínútur heyri ég síðan ámótlegt væl “Katrín”, “Katrín” ég að sjálfsögðu bilast úr hlátri enda vissi ég að lyftan sem Magga fór með á það til að lokast ekki almennilega og fara þar af leiðandi ekki af stað. Það vildi nefnilega svo illa til að Magga kunni ekki að láta innri hurðina opnast svo hún kæmist út. Ég ber mig hetjulega til og reyni að komast aftur upp, emjandi úr hlátri og sá varla neitt vegna tára, ég kemst síðan loksins upp og ætla að opna lyftuna fyrir Möggu en ýti óvart á hurðina og hún lokast og fer niður, aftur emja ég úr hlátri og hraða mér yfir að hinni lyftunni til að komast aftur niður. Þá var stóra lyftan komin upp á 9 hæð og ég doka hin rólegasta, síðan þegar við komum niður á 3 hæð þá opnast lyftan og þar stendur Magga, þá hafði hún ýtt á 3 hæð og ákveðið að forða sér úr lyftunni til að festast örugglega ekki aftur. Að sjálfsögðu byrja ég að emja úr hlátri enn einu sinni þegar ég kem auga á Möggu skelkaða eftir þessa lyftuferð.

 

Loksins komumst við í keilu...

 

Þegar við komum í keiluhöllina drifum við okkur í þessa líka fínu keiluskó sem boðið var upp á og þá hófst fjörið, við spiluðum litla 30 leiki og skemmtum okkur konunglega að hrakförum hvor annarar. Ef braut 16 er lokuð vegna viðgerða þá er það líklega okkur vinkonum að kenna. Kúlurnar lentu oft heldur harkalega á brautinni......

 

Restinni af helginni eyddum við síðan í mestu makindum, horfðum á dvd og slöppuðum vel af. Við komumst hins vegar að því að það er ástæða fyrir því að sumar dvd myndir kosta bara 290 krónur, þau mistök gerum við ekki aftur.

 

Magga yfirgaf mig síðan á sunnudagskvöldinu og skemmtilegu helginni lokið.

 

Á þriðjudaginn kom Magga aftur til borgarinnar með pabba sínum og að sjálfsögðu fór ég og hitti þau. Langt síðan við 3 höfum brallað eitthvað saman. Þau héldu síðan aftur norður yfir heiðar í dag og ég sit hér niðurbrotin og veit ekki hvað ég á að gera af mér, góðar tillögur vel þegnar.

 

Fleira hef ég ekki að segja í bili

Knús og kossar elskurnar mínar

Kveðja úr borg óttans


» 11 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 18:57:48 / katrin

Örstutt blogg

Ákvað að henda inn stuttri færslu þar sem langt er um liðið
Þó það sé langt um liðið er lítið að frétta, ég var að vinna alla páskana, vann 16 vaktir á 14 dögum og fékk síðan alveg heilan dag í frí og viti menn, mig dreymdi vinnuna:evil:var ekki mjög glöð með það.
Ég missti af árlega páskaboðinu hjá ömmu og afa í sveitinni og það hefur ekki gerst áður á minni aumu lífsleið, var ekki mjög glöð með það en það kemur annað ár eftir þetta.
Annars styttist alltaf í að ég skreppi norður í fermingarveislu hjá Birtunni minni, ótrúlegt að hún sé að fara að fermast og það sem skelfilegra er að hún fær bílpróf eftir 3 ár omg.......... hvað hefur orðið um tímann.
Er núna á 8 vakta törn og er að gera eitthvað minna spennandi þessa dagana
Vona að þessi færsla gefi ykkur innsýn inn í mitt spennandi líf:lol:
Knús og kossar úr borg óttans

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 21:25:15 / katrin

Norðurferðin

Þá ætla ég að segja aðeins frá norðurferðinni. ég fór s.s. norður á miðvikudegi því ekki getur besta frænka misst af afmæli:) Það var alveg yndislegt að koma norður aftur þó það hefði verið stutt á milli ferða
Á fimmtudeginum byrjuðum við besta systir að baka og skipuleggja fyrir afmælisveislurnar því þær voru tvær sömu helgina.
Við bökuðum þessa dýrindis lestar skúffuköku og bestu bakarar hefðu roðnað hefðu þeir séð þessa8)
Á fimmtudagskvöldið hitti ég síðan Ólöfu og Helgu og höfðum við margt að spjalla og þó það hafi verið langt síðan við hittumst síðast var eins og við hefðum hist síðast í gær og margir tímar þutu hjá eins og mínútur og planið er margir fleiri hittingar í framtíðinni:haha:
Á föstudeginum var afmælisbrasið síðan sett í fullan gang og það var bakað og skorið og bakað aðeins meira en þetta tókst allt saman á endanum og út úr þessu öllu saman urðu tvær frábærar afmælisveislur.
Ég var nú samt svolítið svekkt á sunnudeginum þvi ég vaknaði með svo svæsna hálsbólgu að ég gat varla talað og var orðin bara hundlasin þegar ég kom aftur í borgina á sunnudagskvöldinu og er ekki ennþá orðin alveg góð:evil: ótrúlegar allar þessar pestar og ég virðist grípa þær allar eins og mér sé borgað fyrir það. Enda var ég vinsamlegast beðin um að fara ekkert aftur norður í bráð, þeim í vinnunni finnst alveg nóg komið;) enda eru allir veikir þessa dagana, enda svo sem ekki skrítið þegar maður vinnur í kringum veikt fólk....
Síðasta helgi var nú heldur ekki af verri endanum, Magga vinkona kom í helgarheimsókn og það var nú margt brallað en samt eins lítið og við komumst upp með, bara frábær helgi:haha: og er búið að plana næstu ferð;)
Annars er á dagskránni 3 auka næturvaktir um helgina og fermingarveisla á sunnudaginn og meiri vinna framundan.
En nú finnst mér vera komið nóg blogg í bili
Knús og kossar úr borg óttans

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 18:33:33 / katrin

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag

Það er víst kominn tími á smá blogg en ég ætla að hafa þetta stutt í dag. Mig langaði bara að óska litlu músinni minni til hamingju með afmælið


                 Til hamingju með 2 



        ára afmælið Íris Björk


Fleira var það ekki í bili, kem með meira blogg síðar um norðurferðina

knús og kossar úr borg óttans


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 19:25:44 / katrin

Hvað syngur í landanum

Til að reyna að bæta bloggtöluna áður en Íris á aftur afmæli ákvað ég að henda eins og einni færslu inn á vefinn.
Fór norður 14.feb til að koma Möggu vinkonu á óvart þar sem hún átti afmæli og hún varð ekkert smá hissa, enda var ég mikið búin að hafa fyrir því að láta hana trúa því að ég væri að vinna ALLA afmælishelgina hennar:haha:
Að sjálfsögðu fór ég líka til Dallas og hitta marga góða þar enda allt of langt síðan ég fór síðast norður.
Þegar ég kom síðan aftur suður var ég komin með hita, hausverk og beinverki og lá heima í 3 daga vegna þess,svo loksins þegar ég hélt að ég væri orðin góð og gæti farið að vinna þá fékk ég magapesti og er ekki alveg orðin góð ennþá en er samt sem áður alveg að skríða saman:)
Ég ætla allavega að fara að vinna á morgun, enda orðin MJÖG þreytt á því að húka heima
Síðan liggur leiðin aftur norður yfir heiðar þar sem litla músin mín á afmæli og að sjálfsögðu getur besta frænka ekki látið sig vanta í þann gleðskap.
En nú er ég búin að segja allt sem ég ætlaði að segja
knús og kossar


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 17:01:49 / katrin

Gleðilega páska

Nú eru Íslendingar svo uppteknir af því að vera fyrstir með alla hluti að jólin eru rétt svo búin, þorrinn varla gengin í garð og það eru komin páskaegg í búðir, ég skil þetta ekki alveg, þurfa páskaeggin virkilega að koma alveg strax, þetta nær ekki nokkurri átt.

Annars er það að frétta að ég er búin að eiga frábæra helgi, mamma, Birta og Bylgja eru búnar að vera í bænum og ég hitti þær alla dagana (þegar ég var búin að vinna), það var svo gaman að hitta þær, hef ekki hitt neinn að norðan síðan um jólin eða nánar tiltekið 28,des og ég get alveg sagt að ég sé komin með heimþrá, það gengur náttúrulega ekki að láta líða svona langt á milli heimferða...

Annars er ég bara búin að vera að vinna undanfarið, var að klára vakt nr.7 af 10, og er orðin pínu þreytt, en ég fæ alveg heils dags frí áður en næsta törn tekur við, en nóg um vinnuna

Hvað er að frétta af ykkur elskurnar mína, það gleður mig að sjá ykkur kommenta og hvet ykkur áfram.

Hef ekkert meira að segja í bili, knús og kossar úr borg óttans


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 19:44:10 / katrin

Með gleði í hjarta og hækkandi sól

Ákvað að henda inn nokkrum línum vegna fjölda áskorana þó ég hafi afar fátt að segja þessa dagana.

Fór norður 23.des eftir 12 tíma næturvakt og alltaf gaman að koma heim. Jólunum eyddi ég að sjálfsögðu með fjölskyldunni og átti yndislegan tíma þrátt fyrir veikindi, geta pestirnar virkilega ekki komið á betri tíma en um jólin!!!!!!!!! hvað er málið með það....

Kom suður 28.des og var að vinna um áramótin, síðan horfði ég á flugeldana af svölunum og var  bara með nokkuð gott útsýni yfir peningaregnið.

Á döfinni er vinna og meiri vinna, fer ekki aftur norður fyrr en febrúar/mars og finnst heldur langt þangað til en tíminn er fljótur að líða þannig að þetta verður nú ekki sem verst.

Hitti Beggu og Helgu Fríði áður en Begga hélt utan og það var rosalega gaman, bara eins og við hefðum allar hist í gær en það er næstum ár síðan við hittumst síðast

Gaman að segja frá þvi að ég er búin að kaupa 6 jólagjafir, já þú last ekki vitlaust ég er búin að kaupa 6 jólagjafir fyrir jólin 2008, það var svo notalegt að vera búin að versla allar jólagjafirnar í nóvember þannig að ég stefni ótrauð að því að vera aftur búin svona snemma.

Það varð eitthvað lítið úr jólakortunum í ár en það verður vonandi betri árangur fyrir næstu jól, þannig að þið sem fenguð ekki jólakort fyrir liðin jól biðst ég afsökunar og lofa bót og betrun.

Ég og kisi erum ein í kotinu þar sem hjónin skelltu sér til London í dag, þau voru greinilega búin að fá alveg nóg af snjónum sem hylur götur Reykjavíkur, mér finnst þetta bara pínu notalegt, ekki alveg jafn mikið myrkur en það fer nú bara alveg að koma vor...maður á alltaf að vera bjartsýnn.

Á morgun er förinni síðan heitið á Klepp, þó ekki til innlagnar, nei ég er að fara á sjálfsvarnarnámskeið í boði vinnunnar þar sem það eru alltaf fleiri og fleiri sem sýna heilbrigðisstarfsmönnum ofbeldi, held þetta verði bara gaman. En þar sem ég rata ekkert voðalega mikið í borginni ætlar Viktoría að leyfa mér að koma með sér svo ég villist ekki.... enda er reglulega hlegið að mér þegar ég segist vera að norðan þegar fólk er að útskýra fyrir mér staðsetningar, meira að segja sjúkraflutningsmennirnir ætla að fara með mig í sight seeing um borgina.

Jæja nú finnst mér ég vera búin að bulla nóg í bili, nú er bara komið að ykkur að kommenta

Knús og kossar úr borg óttans 


» 16 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 02:27:46 / katrin

Enn og aftur á næturvakt

Jæja hvað syngur þá í landanum eftir tap við Dani. Í þetta skipti lágu Danir nefnilega ekki í því...

En að öðrum málum, hvað er að frétta af ykkur lesendur góðir, finnst ég búin að missa allan kontakt þessa dagana endilega leyfið mér að fylgjast með...

Skrapp til London í byrjun nóv og sú ferð var bara skemmtileg enda var ég með skemmtilegu fólki. Best var nú samt þegar við gengum framhjá fólki (sitjandi á kaffihúsi) reykjandi hasspípur, ég og Alda stoppuðum og störðum á liðið enda lítið reyndar í heimi fíkniefnanna, fannst þetta ótrúlegt að fólk sæti bara út á miðri götu reykjandi hass, en við vorum nú leiðréttar þegar við komum heim að þetta hefðu nú bara verið vatnspípur, en mér er nú nokk sama því ég á eftir að muna eftir þessu sem hasspípu enda er það miklu skemmtilegri saga, er það ekki...:D

Náði að versla flestar jólagjafirnar í London og er því bara frekar róleg yfir komandi aðventu, á bara þrjár eftir og geri aðrir betur.

Er líka búin að vera að vinna stanslaust frá því ég kom heim frá London, en þetta er 11. vaktin í röð en þær verða alls 12 í þessari törn (get nú sjálfri mér um kennt þegar maður er alltaf að taka aukavaktir...)

Annars ætlar Magga að kíkja í heimsókn til mín um helgina og það verður bara gaman, búið að plana mikið letilíf um helgina, engar aukavaktir

Jæja ætla að hætta þessu rugli veit ekkert hvað ég er að skrifa hérna.

Knús og kossar til ykkar lesendur góðir og látið nú í ykkur heyra:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 18:00:42 / katrin

Allt að gerast

Það er svo langt síðan ég bloggaði síðast að ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja..., ég allavega fór norður helgina 18-21 október því ég átti langt frí og síðan átti mín ástkæra systir að eignast barn 17.okt en það varð nú bið með það og ekkert barn kom á meðan ég var fyrir norðan. ég var varla lent hérna fyrir sunnan þegar litli kútur ákveður síðan að líta dagsins ljós 24.október og þá að sjálfsögðu varð mín að fara aftur norður til að líta gripinn augum, þá eru komnar tvær norðurferðir á innan við vikum ég fer síðan aftur suður til að stunda mína vinnu en þá er ákveðið að litli kútur verði skírður 4.nóvember, þannig að það voru komnar 3 ferðir norður á jafn mörgum vikum. Ég ætti að fá afsláttakort hjá flugfélaginu.

En litli kútur fékk nafnið Hákon Daði, voðalega fallegt nafn, og ég eignaðist mitt annað barn (er bara guðmóðir en það jafngildir því að ég eigi þessi systurbörn mín:D

Til hamingju með litla prinsinn 

Ég er síðan að fara til London á fimmtudaginn með Möggu og Öldu, það verður bara gaman og aðallega skrautlegt held ég því engin okkar hefur komið til London svo við rötum akkurat ekki neitt...en það bjargast nú eins og venjulega.

Síðan var ég líka að panta mér ferð til Búlgaríu í lok maí í eina viku, fer með Sússu og Óla og Magga og Grétu, þau ætla samt að vera tvær vikur en mér finnst nóg að vera í eina viku

Ég lenti í agalegu veseni á mánudaginn. Ég átti pantað flug um hádegi suður til að ná á kvöldvakt en þegar ég er á leiðinni á flugvöllinn er mér tilkynnt að það verði seinkun á vélinni vegna tækjabilunar fyrir sunnan, það leið og beið og ég komst ekki í loftið fyrr en að verða 5 en kvöldvaktin mín átti að byrja hálf fjögur, en betra seint en aldrei, var mætt í vinnuna rétt fyrir sex.

Annars er lítið að frétta, hlakka bara til að heyra hvað þið eruð að bralla:D

Knús og kossar úr borg óttans 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9